Lokamótið í Páskaeggjasyrpu Nóa Síríus og TR



Nú styttist í þriðja og síðasta mótið í Páskaeggjasyrpu Taflfélags Reykjavíkur og Nóa Síríus en tæplega 80 krakkar tóku þátt í hvoru af fyrstu tveimur mótunum.  Mótið fer fram á sunnudag og hefst kl. 14 og eru allir þeir sem skráðu sig upphaflega hvattir til að mæta aftur.  Þeir sem ekki skráðu sig en vilja taka þátt geta skráð sig á staðnum á meðan húsrúm leyfir.  Keppendur eru vinsamlega beðnir um að gefa sig fram 15 mínútum fyrir upphaf móts.

_____________________________________________________

Löng hefð er fyrir því að halda páskaeggjamót og æfingar hjá taflfélögunum í borginni í aðdraganda páska. Í ár ætla Taflfélag Reykjavíkur og Nói Síríus að gera sérstaklega vel við yngstu skákiðkendurna og bjóða öllum krökkum á grunnskólaaldri að taka þátt í Páskaeggjasyrpunni 2014!

Með þessu framtaki vill T.R. í samstarfi við Nóa Síríus þakka þeim gríðarlega fjölda sem sótt hefur barna- og unglingaæfingar félagsins í vetur.

Algjör sprenging hefur orðið í fjölda iðkenda hjá félaginu og til dæmis um það má nefna að á sama tíma og tvær unglingasveitir frá T.R. tefldu á Íslandsmóti skákfélaga voru 45 krakkar (!) á félagsæfingu í skákhöll félagsins.

Síðastliðinn laugardag mættu svo 63 krakkar á æfingar félagsins sem er algjört met og eflaust þarf að leita langt aftur til að finna viðlíka fjölda á barnaæfingum félagsins! Það ber svo sannarlega markvissu barnastarfi félagsins fagurt vitni að sífellt stærri hópur krakka mætir á æfingar þess.

Frábærar aðstæður eru hjá Taflfélagi Reykjavíkur, margir reyndir þjálfarar og félagið býður eitt félaga upp á ítarlegasta námsefni sem völ er á hér á landi. Allar æfingar og allt námsefni er frítt, það þarf bara að mæta og taka þátt í þessum stórskemmtilegu æfingum!
Páskaeggjasyrpan mun samanstanda af þremur skákmótum sem haldin verða þrjá sunnudaga fyrir páska í skákhöll Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12:

1. NÓA KROPP PÁSKAEGGJAMÓTIÐ. Sunnudaginn 30. mars kl. 14

2. NIZZA LAKKRÍS PÁSKAEGGJAMÓTIÐ. Sunnudaginn 06. apríl kl. 14

3. NIZZA HRÍSKÚLU PÁSKAEGGJAMÓTIÐ. Sunnudaginn 13. apríl kl.14

  • Keppt verður í tveimur flokkum, 1-3 bekk (og yngri) og 4-10 bekk.
  • Sex umferðir verða tefldar í hverju móti með 10 mínútna umhugsunartíma á mann.
  • Glæsileg verðlaun eru í boði fyrir alla hressu skákkrakkana sem taka þátt í syrpunni!
  • Verðlaunapeningar fyrir þrjú efstu sætin í hvorum flokki á hverju páskaeggjamóti.
  • Stór páskaegg fyrir þrjú efstu sætin samanlagt úr mótunum í hvorum flokki (misstór eftir sætum)
  • Allir sem taka þátt í minnst tveimur af þremur mótum í syrpunni fá lítið páskaegg í verðlaun fyrir þátttökuna og verða þau veitt í lok þriðja mótsins í syrpunni.
  • Dregin verður út ein stórglæsileg DGT Easy Polgar skákklukka handa heppnum skákkrakka á hverju páskaeggjamóti!

Taflfélag Reykjavíkur og Nói Síríus hlakka til að sjá ykkur á PÁSKAEGGJASYRPUNNI 2014!