Kaupþing open



Tveir T.R.ingar, alþjóðlegi meistarinn Héðinn Steingrímsson (2470) og undirritaður, Snorri G. Bergsson FIDE-meistari (2301) munu taka þátt í Kaupþing open, sem hefst í Lúxemborg n.k. laugardag. Einnig taka þátt nokkrir Hellismenn og einn skákmaður utan félaga, eins og sjá má neðst á forsíðu Taflfélagssíðunnar.

 

Keppendur fara á mótið með tilstyrk Kaupþings, sem styrkir keppendur mjög rausnarlega til fararinnar. Við, keppendurnir frá Íslandi, stöndum ennfremur í þakkarskuld við formann Hellis, Gunnar Björnsson, sem, að eigin frumkvæði, hafði samband við Kaupþing banka í Lúxemborg og hefur annast ýmis skipulagsmál fyrir keppendur.  

En nú er bara að taka á honum stóra okkar og gera okkar besta.

 

SGB