Jólahraðskákmót TR fer fram þriðjudaginn 29. desember



jolahradskakmot_tr_2014

Jólahraðskákmót Taflfélags Reykjavíkur verður haldið þriðjudaginn 29. desember kl. 19.30. Tefldar verða 2×7 umferðir með 5 mínútna umhugsunartíma. Mótið fer fram í húsnæði T.R. að Faxafeni 12. Þátttökugjald er kr. 500 en frítt fyrir 15 ára og yngri. Verðlaun fyrir þrjú efstu sætin. Sigurvegari síðasta árs var Oliver Aron Jóhannesson.

Hlökkum til að sjá ykkur!