Jólahraðskákmót TR fer fram 29.desember



Jólahraðskákmót Taflfélags Reykjavíkur verður haldið fimmtudaginn 29. desember og hefst taflið klukkan 19:30. Tefldar verða 9 umferðir og verður umhugsunartíminn 4 mínútur á skák auk þess sem 2 sekúndur bætast við eftir hvern leik (4+2). Teflt verður í húsnæði TR að Faxafeni 12. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga. Tekið verður við skráningum í mótið á skákstað á mótsdegi kl.19:00-19:25.

Þátttökugjald er 1.000kr. Frítt er fyrir félagsmenn TR sem eru 17 ára eða yngri. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin.

Vignir Vatnar Stefánsson vann mótið í fyrra eftir æsispennandi baráttu við Ólaf B. Þórsson og Oliver Aron Jóhannesson.

jol15 (4)

Sigurþríeyki Jólahraðskákmóts TR árið 2015.

 

Jólahraðskákmeistarar síðustu 15 ára:

2015: Vignir Vatnar Stefánsson 2014: Oliver Aron Jóhannesson 2013: Jóhann Ingvason 2012: Oliver Aron Jóhannesson 2011: Daði Ómarsson 2010: Jóhann Ingvason 2009: Sigurður Daði Sigfússon 2008: Gunnar Freyr Rúnarsson 2007: Davíð Kjartansson 2006: Stefán Kristjánsson 2005: Hrannar Baldursson 2004: Björn Þorfinnsson 2003: Arnar E. Gunnarsson 2002: Jón Viktor Gunnarsson 2001: Helgi Áss Grétarsson.