Hraðskákmót Reykjavíkur fer fram á sunnudag



Hraðskákmót Reykjavíkur verður haldið í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 sunnudaginn 27. janúar kl. 14.

Tefldar verða 2×7 umferðir eftir Sviss Perfect kerfi. Umhugsunartími verður 5 mínútur á skák.

Þátttökugjald er kr 500 fyrir 16 ára og eldri en frítt fyrir 15 ára og yngri.

Þrenn verðlaun í boði.  

Eftir Hraðskákmótið fer fram verðlaunaafhending fyrir  KORNAX mótið 2013 – Skákþing Reykjavíkur.

Núverandi hraðskákmeistari er Davíð Kjartansson.