Guðmundur með 0,5 af 3 í landsliðsflokki



Þriðju umferð landsliðsflokks Skákþings Íslands var rétt í þessu að ljúka.  Alþjóðlegi meistarinn, Guðmundur Kjartansson (2356), gerði jafntefli við Fide meistarann, Sigurbjörn Björnsson (2287), en í annari umferð tapaði Guðmundur fyrir alþjóðlega meistaranum, Jóni Viktori Gunnarssyni (2462), eftir að hafa leikið af sér heilum hrók.

Guðmundur er í 10.-11. sæti með 0,5 vinning en stórmeistarinn, Henrik Danielsen (2473), er efstur með fullt hús vinninga.

Úrslit 3. umferðar:

1 2 IM Thorfinnsson Bragi 1 – 0 Ornolfsson Magnus P 12
2 3 GM Danielsen Henrik 1 – 0 FM Olafsson David 1
3 4 IM Arngrimsson Dagur 1 – 0 FM Johannesson Ingvar Thor 11
4 5 FM Lagerman Robert 0 – 1 Gislason Gudmundur 10
5 6 IM Gunnarsson Jon Viktor ½ – ½ GM Thorhallsson Throstur 9
6 7 FM Bjornsson Sigurbjorn ½ – ½ FM Kjartansson Gudmundur 8

Fjórða umferð fer fram á morgun og hefst kl. 16 en þá mætir Guðmundur Bolvíkingnum, Magnúsi P. Örnólfssyni (2214).

  • Heimasíða SÍ
  • Chess-Results
  • Skákirnar í beinn