Fimmtudagsmótin hefjast aftur í kvöld eftir jólafrí



Hin margrómuðu fimmtudagsmót T.R. hefjast á nýjan leik í kvöld kl. 19.30. Tefldar verða 7 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma.  Mótið í kvöld er kjörið tækifæri fyrir skákmenn að hita upp fyrir mikla skákhelgi sem er að ganga í garð!

Mótin fara fram í félagsheimili T.R., skákhöllinni að Faxafeni 12, og opnar húsið kl. 19.10.  Glæsilegur verðlaunapeningur er í boði fyrir sigurvegarann.

Mótin eru öllum opin og er aðgangseyrir kr. 500 fyrir 16 ára og eldri en frítt er fyrir 15 ára og yngri.  Boðið er upp á kaffi ásamt léttum veitingum án endurgjalds.