Dagskrá Taflfélags Reykjavíkur aflýst um óákveðinn tíma



Öllum viðburðum Taflfélags Reykjavíkur hefur verið aflýst um óákveðinn tíma vegna kórónuveirunnar, sem og samkomubanns sem heilbrigðisyfirvöld hafa sett á.

Þar á meðal gildir að:

Skákæfingar barna falla niður frá og með laugardeginum 14. mars.

Skákmóti öðlinga er lokið með 5 tefldum umferðum af 7. Núverandi staða keppenda gildir sem lokastaðan í mótinu.

Þriðjudagsmót falla niður frá og með 17. mars.

Fyrsta mót Brim mótaraðarinnar 10.-12. apríl fellur niður.

Dagskrá verður auglýst þegar starfsemi hefst á ný.

Stjórn Taflfélags Reykjavíkur