Barna-og unglingameistaramót/Stúlknameistaramót Reykjavíkur



Barna- og unglingameistaramót Reykjavíkur, sem og Stúlknameistaramót Reykjavíkur, fer fram sunnudaginn 17. febrúar í félagsheimili T.R. Faxafeni 12.

Taflið hefst kl.14 og stendur til ca. kl. 18. Tefldar verða 7 umferðir eftir Monrad-kerfi með umhugsunartímanum 15 mín. á skák. Teflt verður í einum flokki.
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í mótinu og þar fyrir utan hlýtur sigurvegarinn titilinn Unglingameistari Reykjavíkur 2013, sé hann búsettur í Reykjavík eða félagi í reykvísku taflfélagi.

Einnig verða veitt verðlaun fyrir þrjár efstu stúlkurnar og þar fyrir utan hlýtur efsta stúlkan titilinn Stúlknameistari Reykjavíkur 2013, sé hún búsett í Reykjavík eða félagi í reykvísku taflfélag.

 

Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í aldursflokknum 12 ára og yngri (fædd 2000 og síðar).

Mótið er opið öllum krökkum 15 ára og yngri (fædd 1997 og síðar).

Skráning fer fram á taflfelag@taflfelag.is (vinsamlegast gefið upp nafn, fæðingarár, símanúmer, skóla og taflfélag (ef við á)) og einnig er hægt að skrá sig á mótsstað sunnudaginn 17.  febrúar frá kl. 13.30- 13.45. Skákmótið hefst kl. 14.

Aðgangur á mótið er ókeypis.