Æskan og ellin XV -þar sem kynslóðirnar mætast- fer fram sunnudaginn 28. október



 

ae

Skákmótið ÆSKAN OG ELLIN, þar sem kynslóðirnar mætast, verður haldið í 15. sinn sunnudaginn 28. október nk.  í Skákhöllinni í Faxafeni.

TAFLFÉLG REYKJAVÍKUR og RIDDARINN, skákklúbbur eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu með stuðningi TOPPFISKS ehf – leiðandi fyrirtækis í ferskum og frystum sjávarafuðum  – standa saman að mótshaldinu eins og undanfarin ár.  Mótið hefur eflst að vinsældum með árunum og skipar nú fastan sess í skáklífinu.

ae

Fyrstu 9 árin var mótið haldið í Strandbergi, safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju, þar sem Riddarinn hefur aðsetur sitt og eldri skákmenn hittast til tafls vikulega allan ársins hring, en nú síðustu 5 árin í samstarfi við TR- elsta og öflugasta taflfélag landins.   Þessi mót – þar sem kynslóðirnar mætast – hafa jafnan verið fjölsótt jafnt af yngri sem eldri skákmönnum og afar velheppnuð. Yfir 80 ára aldursmunur hefur iðulega verið milli yngsta og elsta keppandans.

Þátttaka í mótinu er ókeypis og miðast við börn og ungmenni á grunnskólaaldri, 15 ára og yngri og roskna skákmenn, 60 ára og eldri. Mótið hefst kl. 13 og verða tefldar 9 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma.   

Vegleg verðlaun og viðurkenningar.   Auk aðalverðlauna verða veitt aldurflokkaverðlaun í 3 flokkum ungmenna og öldunga.  Annars vegar fyrir þrjú efstu sæti í barna og unglinga-flokkum, 9 ára og yngri; 10-12 ára og 13-15 ára og hins vegar fyrir efstu menn í 3 öldunga-flokkum, 60-69 ára; 70-79 ára og 80 ára og eldri.  Auk þess fær sú yngismær sem bestum árangri nær og yngsti og elsti keppandi mótsins sérstök þakkarverðlaun.ae

Mótsnefnd skipa þeir Þórir Benediktsson, varaformaður TR, og Einar S. Einarsson,  erkiriddari/formaður Riddarans.

Skráning til þátttöku fer fram í skráningarformi á www.skak.is og www.taflfelag.is  vikuna fyrir mót.  Hámarksfjöldi keppenda miðast við 80 og því mikilvægt að skrá sig sem fyrst og/eða mæta tímanlega á mótsstað. Hér má sjá lista yfir skráða keppendur.