Vorhátíðarskákæfing



Laugardagsæfingum vetrarins lauk formlega síðastliðinn laugardag þegar vorhátíðaræfing var haldin með pomp og prakt.  Verðlaun voru veitt fyrir árangur og ástundun ásamt því sem glæsilegar veitingar voru í boði.  Þá voru teknar myndir af börnunum ásamt því sem hefðbundin skákæfing fór fram með tilheyrandi þrautum og baráttu við skákborðin.

Í pistli læfingarinnar er m.a. annars talið upp hverjir fengu helstu verðlaun.  Ljósmyndir, sem Jóhann H. Ragnarsson tók, má finna í myndagalleríi síðunnar hér að ofan.

Athugið að stök laugardagsæfing verður laugardaginn 5. júní en æfingarnar hefjast svo aftur af fullum krafti næstkomandi haust.

  • Pistill vorhátíðaræfingarinnar
  • Pistlar allra æfinga vetrarins
  • Myndir frá vorhátíðaræfingunni
  • Myndir frá páskaæfingunni 2010
  • Myndir frá jólaæfingunni 2009