Netmót framundan hjá TR



Taflfélag Reykjavíkur mun bjóða upp á netskákmót á næstunni, sem ekki hefur verið unnt að halda með venjulegu sniði vegna veirunnar skæðu.  Mótin munu fara fram á í gegnum Team Iceland sem þáttakendur þurfa að skrá sig í.

Mótin eru:

Sunnudagurinn 25. október kl.19 Hraðskákmót TR.  11. umferðir með tímamörkunum 3+2.

Fimmtudagurinn 29. október kl.19  Árbæjarskákmótið. 7. umferðir með tímamörkunum 4+2

Sunnudagurinn 1. nóvember  kl.19 Borgarskákmótið. 9. umferðir með tímamörkunum 4+2

Fimmtudagurinn 5. nóvember kl.19  Meistaramót TRUXVA 13. umferðir með tímamörkunum 3+0

Sunnudagurinn 8. nóvember kl. 19 Æskan og ellin (opið U15 og Y60) 9. umferðir með tímamörkunum 6+2

Mótin verða auglýst betur þegar nær dregur.