Nú þegar vika er í Tölvuteksmótið 2012 – Haustmót T.R. eykst skráningin jafnt og þétt. Margir sterkir skákmenn eru þegar skráðir til leiks, þeirra stigahæstur alþjóðlegi meistarinn, Jón Viktor Gunnarsson. Næstur í stigaröðinni kemur Davíð Kjartansson og þá Einar Hjalti Jensson, sem hefur farið mikinn síðan hann dró fram taflmennina á nýjan leik fyrir skemstu.
Skráning í opinn flokk stendur yfir fram að mótsbyrjun en skráningu í lokaða flokka lýkur nk. laugardagskvöld kl. 18. Töfluröð verður dregin sama kvöld. Skráning fer fram á heimasíðu T.R. og keppendalistann má skoða hér.