Vignir Vatnar Hraðskákmeistari Reykjavíkur 2023



329691299_527688552681665_1851690870618079097_n
Frá vinstri: Dagur Ragnarsson, Vignir Vatnar Stefánsson og Benedikt Briem

Hraðskákmót Reykjavíkur fór fram miðvikudaginn 8. febrúrar sl.  Stórmeistarefnið Vignir Vatnar Stefánsson varð Hraðskákmeistari Reykjavíkur en hann hlaut 9 vinn. af 11 mögulegum.
Dagur Ragnarsson varð annar með 8½ vinn. og síðan komu þrír skákmenn jafnir í 3-5. sæti með 7½ vinn. Ansi jöfn og spennandi keppni en Vignir byrjaði á að gera jafntefli við lærisvein sinn úr Breiðabliki, Matthías Björgvin Kjartansson þar sem hann mátti hafa sig allan við að ná jafntefli.

Keppendur voru 32 og skákstjórn í höndum Ríkharðs Sveinssonar.