Taflfélag Reykjavíkur heldur skákmót í Viðeyjarstofu í samstarfi við Eldingu og Borgarsögusafn sunnudaginn 7. júlí kl. 13. Mótið er opið öllum áhugasömum og þátttaka ókeypis en greiða þarf í ferjuna.
Þetta verður fjórða sinn sem mótið verður haldið.
Tefldar verða 9. umferðir með tímamörkunum 3+2 (3 mínútur á mann og 2 sekúndur á leik) og mótið er opið öllum. Teflt verður á annarri hæð Viðeyjarstofu. Hægt er að kynna sér siglingar viðeyjarferjunnar hér:
Eftir 5. umferðir verður gert stutt hlé á taflmennsku en þess má geta að glæsileg veitingasala er í Viðeyjarstofu.
Ekkert þátttökugjald er í mótið, en það þarf að borga sig inn í ferjuna til Viðeyjar:
Gjald í ferjuna fram og til baka eru 2300 kr. fyrir fullorðna og 1150 kr. fyrir börn 7 – 17 ára í fylgd fullorðinna. Börn 6 ára og yngri sigla frítt. Við minnum á að handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og handhafar Gestakortsins (Citycard.is) sigla frítt. Þátttakendur er hvattir til að kaupa miða á elding.is.
Ferjan fer til að mynda samkæmt áætlun til Viðeyjar klukkan 12:15.
Hámarks keppendafjöldi er 50.
Verðlaun í mótinu:
- 15.000kr
- 10.000kr
- 5000kr
Oddastig í mótinu:
1. Bucholz -1
2. Bucholz
3. Sonneborn-Berger
4. Innbyrðis úrslit