Guðmundur Kjartansson efstur á Viðeyjarmótinu



 

Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson varð efstur á Viðeyjarmótinu sem fram fór í Viðey sl. laugardag. Hlaut hann 8 vinninga af 9 mögulegum. Tapaði einni skák gegn Gauta Páli Jónssyni sem varð jafn Guðna Stefáni Péturssyni í 2-3. sæti með 7 vinninga. Það gustaði lítillega á þá 23 keppendur sem lögðu leið sína út í Viðey en þátttakan var heldur lakari heldur en í fyrra. Skemmtilegur viðburður og þegar veðrið er betra er tilvalið að taka fjölskylduna með og skoða eyjuna í leiðinni.

Röð efstur manna:

  1. Guðmundur Kjartansson 8 vinn. af 9
  2. Guðni Stefán Pétursson 7 vinn.
  3. Gauti Páll Jónsson 7 vinn.
  4. Eiríkur Björnsson 6½ vinn.

nánari úrslit má finna á chess-results

292302452_578395360668392_1239073001145965107_n

Efstu menn fyrir framan Viðeyjarstofu: Guðni, Guðmundur og Gauti

Skákstjóri var Ríkharður Sveinsson

Nokkrar myndir frá mótinu: