Veronika Steinunn Magnúsdóttir varð sjötta í sínum flokki í Norðurlandamóti stúlkna sem fram fór í Svíþjóð um helgina. Veronika sigraði í tveimur viðureignum, gerði eitt jafntefli og tapaði tveimur og hlaut því 2,5 vinning í skákunum fimm. Dýrmæt reynsla sem Veronika fékk þarna og kemur hún vafalaust sterkari til leiks í næsta mót. Það var sænska stúlkan Rina Weinman sem sigraði í flokknum en þess má geta að Nansý Davíðsdóttir varð Norðurlandameistari í sínum flokki og óskar Taflfélag Reykjavíkur henni til hamingju með titilinn. Þá varð Jóhanna B. Jóhannsdóttir önnur í sínum flokki og því geta Íslendingar vel við unað en alls tóku sex keppendur þátt fyrir Íslands hönd.
- Chess-Results