Guðmundur og Jóhann efstir í A. flokki



Jóhann H. Ragnarsson (2068) og Guðmundur Kjartansson (2314) eru efstir með 3 vinninga í a-flokki Haustmóts TR.  Fjórað umferð fór fram í dag.  Jóhann vann Stefán Bergsson (2135) Guðmundur gerði jafntefli við Þorvarð F. Ólafsson (2174).  Tómas Björnsson (2162) og Davíð Kjartansson (2291) eru í 3.-4. sæti með 2½ vinning.  

Fimmta umferð fer fram á miðvikudag og hefst kl. 19:30.  Að henni lokinni verður vikuhlé vegna Íslandsmóts skákfélaga.

A-flokkur:

Úrslit 4. umferðar:

 

 

1   Bergsson Stefan  0 – 1   Ragnarsson Johann 
2 FM Bjornsson Tomas  ½ – ½   Jonsson Bjorn 
3   Bjornsson Sverrir Orn  ½ – ½   Valtysson Thor 
4 IM Kjartansson Gudmundur  ½ – ½   Olafsson Thorvardur 
5   Baldursson Haraldur  0 – 1 FM Kjartansson David 

Staðan:

 

 

Rk.   Name RtgI RtgN Club/City Pts. 
1   Ragnarsson Johann  2068 2057 TG 3
2 IM Kjartansson Gudmundur  2314 2316 TR 3
3 FM Bjornsson Tomas  2162 2147 Goðinn 2,5
4 FM Kjartansson David  2291 2266 Víkingaklúbburinn 2,5
5   Bjornsson Sverrir Orn  2158 2141 Haukar 2
6   Bergsson Stefan  2135 2135 SA 2
7   Olafsson Thorvardur  2174 2181 Haukar 1,5
8   Jonsson Bjorn  2045 1962 TR 1,5
9   Valtysson Thor  2041 2025 SA 1,5
10   Baldursson Haraldur  2010 1950 Víkingaklúbburinn 0,5

 

Aðrir flokkar: 

Stephen Jablon (1965) og Dagur Ragnarsson (1761) eru efstir í b-flokki með 3½ vinning.  Kristján Örn Elíasson (1906) er þriðji með 2½ vinning. 

Oliver Aron Jóhannesson (1645) er efstur í c-flokki með 3½ vinning. Birkir Karl Sigurðsson (1597) og Þorsteinn Leifsson eru í 2.-3. sæti með 3 vinninga. 

Vignir Vatnar Stefánsson (1444) er efstur í d-flokki (opnum flokki) með fullt hús.  Dawid Kolka (1366) er annar með 3½ vinning.