Taflfélag Reykjavíkur sigraði Skákfélag Akureyrar örugglega í undanúrslitum Hraðskákkeppni taflfélaga síðastliðið fimmtudagskvöld. Leikar fóru 53-19 TR í vil og stóð Stefán Kristjánsson sig best af TR-ingum og sigraði allar sínar 12 skákir, því næst kom Þröstur Þórhallsson með 11 vinninga af 12. Árangur TR-inga var annars sem hér segir:
- Stefán Kristjánsson 12 v. af 12
- Þröstur Þórhallsson 11 v. af 12
- Arnar E. Gunnarsson 9½ v. af 12
- Guðmundur Kjartansson 7½ v. af 12
- Bergsteinn Einarsson 7 v. af 12
- Snorri G. Bergsson 5 v. af 8
- Julíus Friðjónsson 2 v. af 4
Í hinni undanúrslitaviðureigninni lögðu Bolvíkingar Helli í spennuþrunginni viðureign sem endaði að lokum 37-35 Bolvíkingum í vil.