Þriðja umferð Haustmóts TR fór fram í kvöld. Öllum skákum a-flokks lauk með jafntefli nema einni þar sem Jón Árni Halldórsson lagði Þór Valtýsson. Í b-flokki heldur Helgi Brynjarsson áfram góðu gengi og er enn efstur með fullt hús eftir sigur á Sigurjóni Haraldssyni. Ólafur Gísli Jónsson leiðir í c-flokki, Barði Einarsson leiðir d-flokk og í e-flokki eru Hjálmar Sigurvaldason og Páll Andrason efstir og jafnir með fullt hús.
Öll úrslit og stöðu má nálgast á Chess-Results.
Skákir Haustmótsins má finna hér.
Fjórða umferð verður tefld næstkomandi sunnudag og hefst kl. 14.