Blásið var í herlúðra í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur í gær þegar 2.umferð Haustmótsins var tefld. Óvænt úrslit litu dagsins ljós og línur eru farnar að skýrast eilítið í toppbaráttu flokkanna þriggja.
A-flokkur
Þorvarður Fannar Ólafsson (2184) lét sér ekki nægja að ganga í stjórn Taflfélags Reykjavíkur á dögunum heldur ætlar hann sér stóra hluti við skákborðið líka. Þessi fyrrum skákmeistari félagsins lagði gamla brýnið Björgvin Víglundsson (2185) að velli og hefur Þorvarður því fullt hús einn manna í A-flokki. Þá tók stigahæsti keppandi mótsins, Ingvar Þór Jóhannesson (2367), upp gömlu góðu skólabókina og kenndi ungstirninu -yngsta keppanda A-flokks- Vigni Vatnari Stefánssyni (2129) lexíu í athygliverðu endatafli. Vignir Vatnar tefldi ágætlega með svörtu framan af skák og lengi vel leit út fyrir að hann myndi halda fengnum hlut gegn Ingvari. Vigni varð hins vegar á að leika ónákvæmum leikjum í endataflinu og Ingvar nýtti tækifærið og vann taflið með nær óaðfinnanlegri úrvinnslu. Þá tefldi Jón Trausti Harðarson (2100) sína fyrstu vinningsskák í mótinu með því að stýra hvítu mönnunum til sigurs gegn Birki Karli Sigurðssyni (1900). Grafarvogsbyltan á milli Olivers Arons Jóhannessonar (2255) og Dags Ragnarssonar (2272) endaði með skiptum hlut og sömu sögu má segja um TR-bardaga Gauta Páls Jónssonar (2082) og Hrafns Loftssonar (2192).
Round 2 on 2016/09/21 at 19.30 | |||||||||
Bo. | No. | Rtg | Name | Result | Name | Rtg | No. | ||
1 | 10 | 2184 | Olafsson Thorvardur | 1 – 0 | Viglundsson Bjorgvin | 2185 | 6 | ||
2 | 7 | 2100 | Hardarson Jon Trausti | 1 – 0 | Sigurdsson Birkir Karl | 1900 | 5 | ||
3 | 8 | 2255 | FM | Johannesson Oliver | ½ – ½ | FM | Ragnarsson Dagur | 2272 | 4 |
4 | 9 | 2367 | FM | Johannesson Ingvar Thor | 1 – 0 | Stefansson Vignir Vatnar | 2129 | 3 | |
5 | 1 | 2082 | Jonsson Gauti Pall | ½ – ½ | Loftsson Hrafn | 2192 | 2 |
B-flokkur
Mai bræður voru ekkert að grínast með skráningu sinni í Haustmótið og sitja þeir nú á toppi B-flokks með fullt hús ásamt Jóni Þór Lemery. Þeir þremenningar hafa mætt afspyrnuvel á afreksæfingar í Taflfélaginu og því kemur þessi frammistaða skakþjálfurum félagsins ekki á óvart. Alexander Oliver Mai (1656) gerði sér lítið fyrir og vann stigahæsta keppanda B-flokks, Hörð Aron Hauksson (1856). Alexander hefur því mætt tveimur af fjórum stigahæstu keppendum B-flokks og unnið þá báða. Aron Þór Mai (1845) vann Stephan Briem (1569) í lengstu skák umferðarinnar. Jón Þór Lemery (1591) vann góðan sigur með svörtu gegn Halldóri Kristjánssyni (1649). Róbert Luu (1672) stóð fast í fæturna gegn fyrrum landsliðskonunni Sigurlaugu R. Friðþjófsdóttur (1802) og lyktaði skákinni með jafntefli. Þá mættust feðginin Magnús Kristinsson (1833) og Veronika Steinunn Magnúsdóttir (1777) og sættust þau á skiptan hlut, sem að öllum líkindum er jákvætt fyrir heimilisfriðinn.
Round 2 on 2016/09/21 at 19.30 | |||||||||
Bo. | No. | Rtg | Name | Result | Name | Rtg | No. | ||
1 | 10 | 1833 | Kristinsson Magnus | ½ – ½ | Magnusdottir Veronika Steinun | 1777 | 6 | ||
2 | 7 | 1656 | Mai Alexander Oliver | 1 – 0 | Hauksson Hordur Aron | 1867 | 5 | ||
3 | 8 | 1672 | Luu Robert | ½ – ½ | Fridthjofsdottir Sigurl. Regi | 1802 | 4 | ||
4 | 9 | 1569 | Briem Stephan | 0 – 1 | Mai Aron Thor | 1845 | 3 | ||
5 | 1 | 1649 | Kristjansson Halldor | 0 – 1 | Lemery Jon Thor | 1591 | 2 |
Opinn flokkur
Til tíðinda dróg í toppbaráttu opna flokksins þegar Ólafur Evert Úlfsson (1464) vann stigahæsta keppanda flokksins, Arnald Bjarnason (1647). Ólafur Evert hefur því unnið báðar sínar skákir líkt og Ingvar Egill Vignisson, Hörður Jónasson og Hjálmar Sigurvaldason. Þá sýndi hinn ungi og efnilegi Benedikt Briem (1093) að hann ætlar ekki að gefa stóra bróður í B-flokki þumlung eftir við taflborðið því hann vann Örn Alexandersson (1217) og hefur Benedikt því hlotið 1,5 vinning í skákunum sínum tveimur. Skák Héðins Briem og Þorsteins Magnússonar var frestað vegna veikinda og verður hún tefld næstkomandi mánudagskvöld.
Bo. | No. | Name | Rtg | Pts. | Result | Pts. | Name | Rtg | No. | ||
1 | 6 | Ulfsson Olafur Evert | 1464 | 1 | 1 – 0 | 1 | Bjarnason Arnaldur | 1647 | 1 | ||
2 | 2 | Briem Hedinn | 1563 | 1 | 1 | Magnusson Thorsteinn | 1415 | 9 | |||
3 | 10 | Davidsson Stefan Orri | 1386 | 1 | 0 – 1 | 1 | Vignisson Ingvar Egill | 1554 | 3 | ||
4 | 4 | Jonasson Hordur | 1532 | 1 | 1 – 0 | 1 | Heidarsson Arnar | 1340 | 11 | ||
5 | 24 | Hakonarson Oskar | 0 | 1 | 0 – 1 | 1 | Sigurvaldason Hjalmar | 1485 | 5 | ||
6 | 20 | Kristbergsson Bjorgvin | 1081 | ½ | 0 – 1 | ½ | Thrastarson Tryggvi K | 1450 | 7 | ||
7 | 18 | Briem Benedikt | 1093 | ½ | 1 – 0 | 0 | Alexandersson Orn | 1217 | 13 | ||
8 | 12 | Hakonarson Sverrir | 1338 | 0 | ½ – ½ | 0 | Karlsson Isak Orri | 1148 | 17 | ||
9 | 14 | Thorisson Benedikt | 1169 | 0 | ½ – ½ | 0 | Gudmundsson Gunnar Erik | 1082 | 19 | ||
10 | 21 | Omarsson Adam | 1065 | 0 | 0 – 1 | 0 | Baldursson Atli Mar | 1167 | 15 | ||
11 | 16 | Olafsson Arni | 1156 | 0 | 0 – 1 | 0 | Moller Tomas | 1028 | 22 | ||
12 | 23 | Haile Batel Goitom | 0 | 0 | 1 | bye |
Nánari upplýsingar um mótið má nálgast á chess-results. Þá hefur Daði Ómarsson slegið inn skákir 2.umferðar með slíkum ógnarhraða að keppendur ná varla að undirrita skorblaðið áður en skákir eru komnar á tölvutækt form. Skákir Haustmótsins (pgn): #1, #2
Næstkomandi föstudagskvöld verður 3.umferð tefld í félagsheimilinu og má reikna með æsilegum bardögum og fallegum fléttum. Taflið hefst klukkan 19:30.