Sveit Taflfélags Reykjavíkur lagði á dögunum sveit Skákdeildar Hauka í undanúrslitum Hraðskákkeppni Taflfélaga. Sigurinn var öruggur en viðureigninni lauk 46-26 T.R. í vil eftir að staðan í hálfleik hafði verið 20-16.
Á sama tíma fór fram hin undanúrslitaviðureignin á milli Hellismanna og Taflfélags Bolungarvíkur. Sú viðureign var mun meira spennandi en að lokum höfðu Hellismenn nauman sigur, 36,5-35,5 en staðan í hálfleik var 18,5-17,5.
Teflt var í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12.
Í úrslitum, sem fara fram í húsnæði T.R. miðvikudaginn 15. september kl. 19.30, mætast því Hellismenn og TR-ingar.