www.skak.is
Taflfélag Reykjavíkur vann öruggan sigur á Taflfélaginu Helli í úrslitum Hraðskákkeppni taflfélaga, sem fram fór í dag í Skákhöllinni í Faxafeni. Lokatölur urðu 43,5-28,5 eftir að staðan var í hálfleik 24-12. Þröstur Þórhallsson stóð sig best TR-inga en Bragi Þorfinnsson var bestur Hellismanna. Þetta er annað árið í röð sem TR-ingar hampa sigri og í fimmta skipti frá upphafi.
Árangur TR-inga:
- Þröstur Þórhallsson 9,5 v. af 12
- Jón Viktor Gunnarsson 8 v. af 11
- Stefán Kristjánsson 7,5 v af 12
- Arnar E. Gunnarsson 5 v. af 8
- Guðmundur Kjartansson 5 v. af 11
- Dagur Arngrímsson 3,5 v. af 10
- Snorri G. Bergsson 2 v. af 3
- Helgi Áss Grétarsson 2 v. af 4
- Torfi Leósson 1 v. af 1
Árangur Hellisbúa:
- Bragi Þorfinnsson 8 v. af 12
- Jóhann Hjartarson 6 v. af 12
- Ingvar Þór Jóhannesson 3 v. af 10
- Björn Þorfinnsson 3 v. af 10
- Sigurbjörn Björnsson 2,5 v. af 10
- Róbert Harðarson 2 v. af 6
- Hjörvar Steinn Grétarsson 2 v. af 6
- Davíð Ólafsson 1,5 v. af 2
- Andri Á. Grétarsson 0,5 v. af 1
- Sigurður Daði Sigúfsson 0 v. af 3
Þetta var spennandi viðureign. T.R.ingar unnu í fyrstu umferð 4-2, en Hellismenn náðu jafnan 3-3 jafntefli með hvítu, uns þeir náðu sigri. En T.R.ingar höfðu betur í heildina, m.a. vegna 6-0 sigurs í 3. umferð. Hellismenn börðust þó vel, en T.R.ingar héldu sínu.
T.R.ingar eru því Hraðskákmeistarar taflfélaga annað árið í röð og stefna að því, að halda bikarnum á komandi árum.
Mynd: Þröstur Þórhallsson fékk flesta vinninga T.R.inga í gær.