Vignir Vatnar Unglingameistari – Donika Stúlknameistari



Vignir Vatnar Stefánsson er Unglingameistari T.R. 2012 og Donika Kolica er Stúlknameistari T.R. 2012.

Barna- og unglingameistaramót sem og Stúlknameistaramót Taflfélags Reykjavíkur fór fram sunnudaginn 16. september, í félagsheimili T.R. Faxafeni 12. Keppt var í einum flokki og voru 7 umferðir tefldar eftir Monradkerfi, en umhugsunartíminn var 15 mínútur á skák.

Skákmótið var opið fyrir keppendur 15 ára og yngri og tóku 22 krakkar þátt. Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, en auk þess fyrir þrjár efstu stúlkurnar. Félagsmenn í TR kepptu einnig um titilinn Unglingameistari T.R. 2012 og Stúlknameistari T.R 2012. Að auki voru veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í flokki 12 ára og yngri.

Skákmótið var frekar snemma á ferðinni þetta árið. Síðustu ár hefur mótið verið haldið í nóvember, en sakir fjölda annarra skákmóta í þeim mánuði var ákveðið að flytja það fram í miðjan september. Næstum allir krakkarnir sem tóku þátt í mótinu höfðu einnig tekið þátt í stóra afmælismótinu í Laugardalshöllinni deginum áður, sem haldið var í tilefni af 40 ára afmæli Einvígis aldarinnar milli Fischers og Spassky og var þetta því mikil skákhelgi!

Skákmótið var spennandi og skemmtilegt! Eftir fjórðu umferð bauð T.R. keppendum upp á pizzu og gos og gafst þá krökkunum tækifæri á að spjalla saman á léttum nótum!

Sigurvegari mótsins og jafnframt Unglingameistari T.R. 2012 varð hinn 9 ára gamli Vignir Vatnar Stefánsson, sem einnig fékk 1. verðlaun í flokki 12 ára og yngri!

Efst í flokki stúlkna og þar með einnig Stúlknameistari T.R. 2012 varð Donika Kolica, sem er 15 ára gömul. Donika hefur verið virk í skákinni undanfarin misseri og er hún að taka stökk fram á við með árangri sínum í þessu skákmóti.

 

Úrslit skákmótsins urðu annars sem hér segir:

Efst í opnum flokki:

 

1. Vignir Vatnar Stefánsson, 6,5 vinn.

2. Hilmir Freyr Heimisson 6 vinn.

3. Gauti Páll Jónsson 5 vinn.

 

Efst í stúlknaflokki:

 

1. Donika Kolica 4,5 vinn.

2. Svandís Rós Ríkharðsdóttir 4 vinn.

3. Veronika Steinunn Magnúsdóttir 3,5 vinn.

 

Efst í yngri flokki:

 

1. Vignir Vatnar Stefánsson 6,5 vinn.

2. Hilmir Freyr Heimisson 6 vinn.

3. Guðmundur Agnar Bragason 4,5 vinn.

Skákstjórn var í höndum Torfa Leóssonar og Sigurlaugar R. Friðþjófsdóttur sem einni tók myndir.

  • Heildarúrslit
  • Myndir