Laugardagsmót TR hefjast á ný laugardaginn 22.september



20180325_141315

Laugardagsmót TR hefjast á ný laugardaginn 22.september. Sem fyrr eru tefldar 7 umferðir með umhugsunartímanum 5 mínútur á skák auk þess sem 3 sekúndur bætast við eftir hvern leik (5+3). Mótin verða haldin alla laugardaga kl.14-16 og þau verða ekki reiknuð til stiga líkt og gert var síðasta vetur. Laugardagsmótin eru opin öllum börnum á grunnskólaaldri, óháð félagsaðild og styrkleika.

Umsjón með mótunum hefur Þorsteinn Magnússon.