Stórmót Árbæjarsafns og TR haldið sunnudaginn 27. ágúst klukkan 14



Stórmót Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 27. ágúst. Mótið gefur einstakt tækifæri til að takast á við skákgyðjuna í sögulegu umhverfi Árbæjarsafns.

Teflt verður í Árbæjarsafni og hefst taflið kl.14. Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur auk 2 sekúndna viðbótartíma eftir hvern leik (4+2). Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, 15.000 kr., 10.000 kr. og 5.000 kr. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

Þátttökugjald er greitt með því að greiða aðgangseyri inn á safnið samkvæmt gjaldskrá Árbæjarsafns. Frítt er fyrir handhafa Menningarkortshafa Reykjavíkurborgar (greitt einusinni), öryrkja og börn 17 ára og yngri. Þátttökugjaldið er greitt við inngang safnsins.

Núverandi Árbæjarsafnsmeistari er Róbert Lagerman.

Óskað er eftir því að keppendur skrái sig í gegnum hefðbundið skráningarform.

Skráningarform 

Þegar skráðir keppendur

Verðlaun skiptast eftir Hort kerfi. Oddastigaútreikningur í mótinu:

  1. Bucholz -1
  2. Bucholz
  3. Innbyrðis úrslit
  4. Sonneborn-Berger