Skráningu lýkur klukkan 18 á Öðlingamótið, og klukkan 18 á morgun á Yrðlingamótið



Skráningu lýkur klukkan 18 í dag á Öðlingamótið, og klukkan 18 á morgun á Yrðlingamótið. Auglýsing mótanna:

Skákmót öðlinga 40 ára og eldri hefst miðvikudaginn 17. febrúar kl. 19.30 í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur á alla skákina auk 30 sekúndna viðbótartíma á hvern leik. Núverandi Skákmeistari öðlinga er Róbert Lagerman.

Sú nýjung er nú, að einnig verður boðið upp á Yrðlingamót fyrir skákmenn á aldrinum 18-39 ára, eða fædda milli 1982 og 2003. Mótið verður með nákvæmlega sama sniði og Öðlingamótið, nema að teflt verður á fimmtudagskvöldum

Dagskrá Öðlingamótsins:
1. umferð miðvikudag 17. febrúar kl. 19.30
2. umferð miðvikudag 24. febrúar kl. 19.30
3. umferð miðvikudag 3. mars kl. 19.30
4. umferð miðvikudag 10. mars kl. 19.30
5. umferð miðvikudag 17. mars kl. 19.30
6. umferð miðvikudag 24. mars kl. 19.30
7. umferð miðvikudag 31. mars kl. 19.30

Dagskrá Yrðlingamótsins:

1. umferð fimmtudag 18. febrúar kl. 19.30
2. umferð fimmtudag 25. febrúar kl. 19.30
3. umferð fimmtudag 4. mars kl. 19.30
4. umferð fimmtudag 11. mars kl. 19.30
5. umferð fimmtudag 18. mars kl. 19.30
6. umferð fimmtudag 25. mars kl. 19.30
7. umferð fimmtudag 1. apríl kl. 19.30

Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað 30 mínútum eða meira eftir upphaf umferðar.

Tvær yfirsetur (bye) eru leyfðar í umferðum 1-5 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Láta skal skákstjóra vita um yfirsetu við upphaf umferðarinnar á undan.

Hraðskákmót öðlinga fer fram miðvikudaginn 7. apríl kl. 19:30 og að því loknu fer þar fram verðlaunaafhending fyrir bæði mót. Keppt er um veglegan farandbikar, en auk hans eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, bæði í aðalmótinu og hraðskákmótinu.

Ef svokallað hraðskákmót yrðlinga verður haldið, verður það auglýst betur síðar.

Tímamörk í mótunum
90 mín + 30 sek viðbót eftir hvern leik

Verðlaun í mótunum
1. sæti kr. 40.000
2. sæti kr. 20.000
3. sæti kr. 10.000

Verðlaunafé verður skipt eftir Hort-kerfi verði keppendur jafnir að vinningum. Lokaröð keppenda ræðst af oddastigum (tiebreaks).

Oddastig: 1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger 6. Oftar svart

Þátttökugjald (greiðist með reiðufé við upphaf móts) eða lagt inn á reikning félagsins.

kr. 5.000

Skákstjóri á öðlingamótinu er FA Jon Olav Fivelstad og á yrðlingamótinu er IA Omar Salama skákstjóri.

Ef sóttvarnarreglur verða hertar á meðan móti stendur, og búnar eru fimm eða fleiri umferðir, lýkur mótinu og sú staða gildir sem þá er uppi. Annars verður mótið klárað síðar.

Skráningarform í Öðlingamótið 

Þegar skráðir keppendur 

Skráningarform í Yrðlingamótið 

Þegar skráðir keppendur