Síðasta fimmtudagsmót ársins í kvöld



Að venju fer fram fimmtudagsmót T.R. í kvöld kl. 19.30.  Tefldar verða 7 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma.Mótin fara fram í félagsheimili T.R., skákhöllinni að Faxafeni 12, og opnar húsið kl. 19.10.  Glæsilegur verðlaunapeningur er í boði fyrir sigurvegarann.

Mótin eru öllum opin og er aðgangseyrir kr. 500 fyrir 16 ára og eldri en frítt er fyrir 15 ára og yngri.  Boðið er upp á kaffi ásamt léttum veitingum án endurgjalds.

Þetta er síðasta fimmtudagsmót ársins en þau hefjast á nýju ári fimmtudaginn 7. janúar.