Skákkeppni vinnustaða fer fram í kvöld



Taflfélag Reykjavíkur býður öllum vinnustöðum að taka þátt í Skákkeppni vinnustaða 2014 sem fram fer í félagsheimili T.R., Skákhöllinni Faxafeni 12, miðvikudaginn 12. febrúar og hefst kl. 19.30.  Mótið, sem er styrktarmót Taflfélags Reykjavíkur,  er kjörið fyrir hinn almenna skákáhugamann þar sem vinnufélagar geta myndað lið og spreytt sig gegn skákmönnum annarra vinnustaða.

Dagsetning

Miðvikudagur 12. febrúar kl. 19.30

Staður

Taflfélag Reykjavíkur, Faxafeni 12

Keppnisfyrirkomulag

Þriggja manna lið með 1-2 varamönnum
Vinnustaður getur sent nokkur lið til keppni sem verða þá auðkennd sem A-lið, B-lið o.s.frv.
Svissneskt pörunarkerfi og flestir vinningar gilda
7-11 umferðir (bundið þátttöku)
Umhugsunartími er 10 mínútur á mann

Verðlaun

1. Eignabikar fyrir vinnustaðinn og farandbikar til vörslu í 1 ár auk verðlaunapeninga fyrir keppendur

2. Eignabikar fyrir vinnustaðinn auk verðlaunapeninga fyrir keppendur

3. Eignabikar fyrir vinnustaðinn auk verðlaunapeninga fyrir keppendur

Þátttökugjald

15.000 kr fyrir hvert lið

Nánari upplýsingar

Ríkharður Sveinsson, stjórnarmaður í Taflfélagi Reykjavíkur. Netfang: rz@itn.is gsm: 7722990.

Skráning og staðfesting þátttöku

Skráning fer fram á heimasíðu Taflfélags Reykjavíkur

Þátttökugjaldið greiðist inn á reikning Taflfélags Reykjavíkur. Reikningsnúmer: 0101-26-640269. Kennitala: 640269-7669. Vinsamlegast setjið í skýringu: VINNUST

Verið velkomin að taka þátt í Skákkeppni vinnustaða 2014 – hlökkum til að sjá ykkur!

  • Skráð lið