Skákæfingar T.R. fyrir 12 ára og yngri hefjast 12. september



Skákæfingar (skákkennsla og skákmót) fyrir stelpur og stráka 12 ára og yngri hefjast hjá Taflfélagi Reykjavíkur laugardaginn 12. september kl. 14 í húsnæði félagsins að Faxafeni 12. Laugardagsæfingarnar verða í allan vetur frá kl. 14-16. Þátttaka er ókeypis.

Myndin er tekin á lokaæfingu T.R. veturinn 2008-2009 og sýnir verðlaunahafa vetrarins.