Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir var endurkjörin formaður Taflfélags Reykjavíkur á aðalfundi félagsins sem fór fram síðastliðið mánudagskvöld. Meðstjórnendur starfsárið 2010-2011 eru:
- Björn Jónsson
- Elín Guðjónsdóttir
- Eiríkur K. Björnsson
- Magnús Kristinsson
- Ólafur S. Ásgrímsson
- Ríkharður Sveinsson
Varamenn eru:
- Þórir Benediktsson
- Torfi Leósson
- Áslaug Kristinsdóttir
- Atli Antonsson
Sigurlaug er önnur konan til að gegna formennsku í félaginu og sú fyrsta sem situr í formannsstól lengur en eitt starfsár.