Síðasta umferð Kornax mótsins – Skákþings Reykjavíkur hefst kl. 19.30 í kvöld. Fyrir síðustu umferðina er Ingvar Þ. Jóhannesson efstur með 7 vinninga, Guðmundur Kjartansson er annar með 6.5 og á hæla hans erru 4 skákmenn jafnir með 6 vinninga. Það eru þeir Hjörvar Steinn, Bragi og Björn Þorfynssinir og Einar H. Jensson. Allir eiga þeir möguleika á að sigra á mótinu. Bein útsending verður frá 5 efstu borðunum en þar mætast
- Ingvar Þór (7) – Bragi Þ. (6)
- Guðmundur K. (6,5) – Hjörvar Steinn (6)
- Einar Hjalti (6) – Björn Þ. (6)
- Stefán B. (5,5) – Þór Már (5,5)
- Sverrir Örn (5,5) – Mikael Jóhann (5,5)
chess-results.(pörun, úrslit, staða)