Um helgina fer fram seinni hluti Íslandsmóts skákfélaga. Að venju er teflt í Rimaskóla og er dagskráin sem hér segir:
- 5. umferð – föstudag 5. mars kl. 20
- 6. umferð laugardag 6. mars kl. 11
- 7. umferð laugardag 6. mars kl. 17
Sveitir T.R. stóðu sig vel í fyrri hlutanum og eiga b- og c- sveitirnar nokkuð góða möguleika að komast upp um deild, b-sveitin upp í fyrstu deild og c-sveitin upp í aðra deild. A-sveitin siglir lygnan sjó um miðbik fyrstu deildar, d- og e- sveitir eru um miðbik fjórðu deildar og f-sveitin er í neðri hluta sömu deildar.
Til upprifjunar má finna samantekt um árangur sveitanna í fyrri hlutanum síðastliðið haust hér.