Stefán Bergsson Páskameistari TR 2022!



Stefán Bergsson vann virkilega sannfærandi sigur á hinu fyrsta Páskaeggjamóti TR sem haldið var laugardaginn fyrir páska. 10 vinningar af 11 mögulegum, en tefldar voru hraðskákir með tímamörkunum 3+2. 20 skákmenn mættu til leiks, talsvert færri en oft áður á hraðskákmótum, en eins og gengur eru margir á faraldsfæti um páskana. Jafnir í 2.-3. sæti með 7.5 vinning urðu þeir Dagur Kjartansson og Gauti Páll Jónsson með 7.5 vinning. Efstur í barna- og unglingaflokki (grunnskólaaldur) varð Örvar Hólm Brynjarsson, með 6 vinninga. Allir verðlaunahafar fengu páskaegg frá Nóa Síríus.

Öll úrslit mótsins má nálgast á chess-results.

paskamot2022