Nýtt á dagskrá hjá TR – Æfingarkappskák!



Hér í den var teflt alla þriðjudaga og fimmtudaga í TR. Nú hafa þriðjudagsmótin verið endurvakin og hafa gengið vel í tvö ár. Rökrétt framhald er að bjóða upp á eitthað á fimmtudögum á ný!
Æfingarkappskákin verður þannig að teflt verður einu sinni í mánuði fram á sumar, og vonandi hálfsmánaðarlega í haust ef vel gengur.

Fram í sumar er miðað við fyrsta fimmtudag hvers mánaðar að undanskyldu fyrstu skákinni, hún verður teflt 8. apríl. Tefld er ein 90/30 kappskák og er hún ekki reiknuð til stiga. Ókeypis þáttaka og opið öllum. Taflmennska hefst klukkan 19:30 og teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12.

Skráningarform er í skákirnar og lýkur skráningu klukkan 12:00 á hádegi á þriðjudeginum fyrir skákina. Fljótlega eftir hádegi verður pörun birt, og reynt verður að hafa ekki of mikið stigabil milli manna sem mætast. Gefst því ágætis tími fyrir undirbúning.

Hægt er að líta á æfingarskákirnar sem fínan stað fyrir þá sem eru að dusta rykið af taflmönnunum en vilja “tefla sig í gang”. Einnig sniðugur byrjunarreitur fyrir fólk sem vill prófa kappskák en er ekki tilbúið í mót, og auðvitað líka fínt fyrir virka skákmenn sem vilja bara tefla ennþá meira!

Athugið að ekki er um eiginlegt mót að ræða. Þó verða veitt verðlaun fyrir ástundum, bæði í Y2000 og U2000 flokki.

Skráningarform fyrir skákina 8. apríl 

Þegar skráðir keppendur 

Dagskrá fram yfir sumar:

1. Skák fimmtudaginn 8. apríl
2. Skák fimmtudaginn 6. maí
3. Skák fimmtudaginn 3. júní
4. Skák fimmtudaginn 1. júlí
5. Skák fimmtudaginn 5. ágúst