Okkar maður á Fiskmarkaðsmóti Hellis, Andrzej Misiuga, vann Spánverjann Fonseca tiltölulega auðveldlega, og mjög glæsilega þar að auki, í 7. umferð, sem tefld var í dag. Hefur hann komið skemmtilega á óvart í mótinu og staðið sig framar vonum, eins og stigabreytingarskrá hans segir til um:
6 | Misiuga Andrzej | POL | 2153 | TR | 4,0 | 2323 | 1,59 | 15 | 23,9 |
Þ.e. 23,9 stig í plús, með fjóra vinninga af sjö mögulegum.
Árangur Misiugas hefur vakið það mikla athygli, að áhrifamaður í Taflfélagiu Helli bauð 10.000 og einn leikmann í Misiuga.