Magnús Pálmi Örnólfsson sigraði á fimmtudagsmót Taflfélags Reykjavíkur með fullu húsi en hann fékk 9 vinninga úr 9 umferðum. Í öðru sæti varð Kristján Örn með 8 vinninga og í því þriðja varð Víkingur Fjalar með 7 vinninga. Að þessu sinnu voru keppendur aðeins tíu og kepptu allir við alla (Round Robin) 7 mínútna skákir. Dræma þátttöku, að þessu sinni, má eflaust skýra með því að keppt var í áskorendaflokki á sama tíma en margir fastagestir fimmtudagsmótanna keppa á Íslandsmótinu í skák sem fram fer í Mosfellsbæ þessa dagana.
Skákstjóri var Kristján Örn Elíasson
Lokastaðan:
1 Magnús Pálmi Örnólfsson, 9 36.00
2 Kristján Örn Elíasson, 8 28.00
3 Víkingur Fjalar Eiríksson, 7 21.00
4 Gunnar Finnsson, 6 15.00
5 Gunnar Friðrik Ingibergsson, 5 10.00
6 Jón Gunnar Jónsson, 3.5 5.25
7 Björgvin Kristbergsson, 3 3.50
8 Jóhann Bernhard Jóhannsson, 2.5 2.75
9 Gauti Páll Jónsson, 1 0.00
10 Matthías Ævar Magnússon, 0 0.00