Kjartan Maack og Gauti Páll efstir á fimmtudagsmótum



Tólf skákmenn mættu til leiks í Taflfélag Reykjavíkur fimmtudaginn 14.september en mótið var vel skipað sterkum hraðskákmönnum.  Tímamörkin eru 3+2, þrjár mínútur og 2 sekúndur í uppbótartíma fyrir hvern leik sem leikinn er.  Þessi tímamörk eru spennandi og skemmtileg og voru tefldar margar spennandi skákir þar sem allt var lagt í sölurnar. Kjartan Maack stóð uppi sem sigurvegari kvöldsins, hann telfdi vel og fór taplaus í gegnum mótið og hækkar um 30 skákstig fyrir vikið.  Andri Ívarsson var síðan með besta árangur miðað við eigin skákstig en hann hækkar um 40 stig og báðir hljóta þeir í sigurlaun inneign hjá Skákbúðinni.
Mótið á chess results.
Kjartan Maack

Kjartan Maack

Tíu mættu til leiks fimmtudaginn 21.september í Taflfélag Reykjavíkur en tímamörkin eru 3+2, hraðskákir.   Telfdu allir við alla og stóð Gauti Páll Jónsson uppi sem sigurvegari með 8 vinninga alls en Mohammadhossein Ghasemi hlaut einnig 8 vinninga en Gauti Páll vann innbyrðis viðureignina þeirra á milli.  Theodór Eiríksson var með bestan árangur miðað við eigin stig en hann fékk 6 vinninga og hækkar um 136 skákstig sem er ótrúlega góður árangur!  Verðlaun eru inneign í Skákbúðinni.  Heitt var á könnunni og hvetjum við alla þá sem hafa gaman af æsispennandi og taugastrekkjandi tímamörkum að mæta og tefla en allar skákir eru reiknaðar til alþjóðlegra hraðskákstiga.
Mótið á chess-results.
Gauti Páll

Gauti Páll