Alþjóðlegi meistarinn, Jón Viktor Gunnarsson, tryggði sér sigur á Haustmótinu þegar hann vann Jóhann H. Ragnarsson í áttundu og næstsíðustu umferðnni sem fram fór á sunnudag. Þegar einni umferð er ólokið hefur Jón 7 vinninga, 1,5 vinningi meira en stórmeistari kvenna, Lenka Ptacnikova, sem sigraði Sverri Örn Björnsson. Einar Hjalti Jensson er þriðji með 5 vinninga eftir sigur á Gylfa Þór Þórhallssyni.
Níunda og síðasta umferð fer fram á miðvikudagskvöld og hefst kl. 19.30. Þá mætast m.a. Jón Viktor og alþjóðlegi meistarinn, Sævar Bjarnason, Lenka og Mikael Jóhann Karlsson, og Einar Hjalti og Kjartan Maack.
Staðan í B-flokki er æsispennandi fyrir lokaumferðina. Fjölnismennirnir ungu, Jón Trausti Harðarson, Dagur Ragnarsson og Oliver Aron Jóhannesson, raða sér í þrjú efstu sætin. Jón og Dagur eru jafnir í 1.-2. sæti með 5,5, vinning en Oliver er þriðji með 5 vinninga. Í áttundu umferð vann Jón Sigurlaugu R. Friðþjófsdóttur, Oliver vann Sveinbjörn Jónsson en Dagur sat hjá.
Svo einkennilega vill til að Dagur situr aftur hjá í níundu og síðustu umferð því andstæðingur hans, Nökkvi Sverrisson, þurfti að hætta þátttöku í mótinu. Það er því ljóst að Dagur mun ljúka keppni með 5,5 vinning þar sem „vinningar“ í hjásetu þurrkast út. Oliver mætir Sigurlaugu og Jón Trausti mætir Grími Birni Kristinssyni. Skrýtin staða er uppi því í raun er Dagur öruggur með a.m.k. skipt efsta sæti þar sem eftir á að þurrka út vinning Jóns Trausta gegn Elsu Maríu í fyrstu umferð og sama gildir um vinning Olivers gegn Nökkva í sjöundu umferð.
Í opna flokknum er enn kominn nýr forystusauður og að þessu sinni er það Dawid Kolka sem hefur 6 vinninga eftir sigur á Hilmi Frey Heimissyni. Hilmir er í 2.-4. sæti ásamt Bjarnsteini Þórssyni og Vigni Vatnari Stefánssyni en báðir hafa verið á góðu flugi eftir rólega byrjun.
Í síðustu umferðinni mætir Dawid Vigni Vatnari, Hilmir Freyr mætir Felix Steinþórssyni og Bjarnsteinn mætir Heimi Páli Ragnarssyni.
- Bein útsending
- Úrslit, staða og pörun
- Myndir
- Upplýsingar
- Skákmeistarar T.R.
- Skákir: 1. umf 2. umf 3. umf 4. umf 5. umf