Þegar tvær umferðir eru eftir af Haustmóti T.R. hefur alþjóðlegi meistarinn, Jón Viktor Gunnarsson, 1,5 vinnings forskot á næsta keppanda. Jón sigraði Kjartan Maack í sjöttu umferð og gerði jafntefli við Einar Hjalta Jensson í þeirri sjöundu og hefur nú 6 vinninga. Stórmeistari kvenna, Lenka Ptacnikova, er önnur með 4,5 vinning eftir sigra gegn Jóhanni H. Ragnarssyni og alþjóðlega meistaranum, Sævari Bjarnasyni. Lenka hefur aðeins tapað einni skák í mótinu, gegn Jóni Viktori. Einar Hjalti er þriðji með 4 vinninga.
Í áttundu umferð sem hefst á sunnudag kl. 14 mætir Jón Jóhanni, Lenka mætir Sverri Erni Björnssyni og Einar mætir Gylfa Þórhallsyni.
Í B-flokki heldur Dagur Ragnarsson enn forystunni eftir sigur á Grími Birni Kristinssyni í sjöttu umferð og jafntefli við Eirík K. Björnsson í sjöundu umferð. Dagur hefur 5,5 vinning en félagar hans úr Rimaskóla koma næstir í öðru og þriðja sæti; Jón Trausti Harðarson með 4,5 vinning og Oliver Aron Jóhannesson með 4 vinninga.
Spennan í flokknum er mikil því Dagur situr hjá í áttundu umferð og því getur Jón Trausti náð honum vinni hann Sigurlaugu R. Friðþjófsdóttur. Á sama tíma teflir Oliver við Sveinbjörn Jónsson.
Mikil spenna er í opna flokknum þar sem Hilmir Freyr Heimisson leiðir með 5,5 vinning eftir sigur á Sóleyju Lind Pálsdóttur í sjöundu umferð. Gauti Páll Jónsson og Dawid Kolka eru jafnir í 2.-3. sæti með 5 vinninga. Dawid og Hilmir mætast í áttundu umferð og þá mætir Gauti Páll Bjarnsteini Þórssyni sem getur með sigri blandað sér í toppbaráttuna.
- Bein útsending
- Úrslit, staða og pörun
- Myndir
- Upplýsingar
- Skákmeistarar T.R.
- Skákir: 1. umf 2. umf 3. umf 4. umf 5. umf