Jóhann H. Ragnarsson, tengdavaraformaður T.R., sigraði á Grand Prix móti T.R. og Fjölnis, en 5. mótið í röðinni fór fram í gærkvöldi, fimmtudagskvöld. Hann tapaði fyrir Vigfúsi Óðni Vigfússyni í 1. umferð, en sigraði aðrar skákir. Elsa María Kristínardóttir fékk kvennaverðlaun og Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir unglingaverðlaun, þ.e. fyrir keppendur á grunnskólaaldri.
Verðlaunahafar voru að þessu sinni leystir út með tónlistarverðlaunum frá Zonet, Smekkleysu og 12 tónum.
Nánari úrslit voru:
1 | Jóhann H. Ragnarsson | 5/6 |
2 | Daði Ómarsson | 4.5 |
3 | Vigfús Óðinn Vigfússon | 4.5 |
4 | Erlingur Þorsteinsson | 4 |
5 | Helgi Brynjarsson | 3 |
6 | Elsa María Kristínardóttir | 3 |
7 | Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir | 2.5 |
8 | Tinna Kristín Finnbogadóttir | 2.5 |
9 | Örn Leó Jóhannsson | 1 |
10 | Alexander Már Brynjarsson | 0 |
Skákstjóri var Helgi Árnason. Næsta mót fer fram í Skákhöll Reykjavíkur næsta fimmtudagskvöld og hefst kl. 19.30.