Jóhann H. Ragnarsson (2068) og Guðmundur Kjartansson (2314) eru efstir með 4 vinninga í a-flokki Haustmóts TR en fimmta umferð fór fram í kvöld. Jóhann vann Tómas Björnsson (2162) í vel útfærðri sóknarskák og Guðmundur lagði Stefán Bergsson (2135). Davíð Kjartansson(2291) er þriðji með 3½ vinning. Nú verður vikuhlé á mótinu vegna Íslandsmóts skákfélaga.
Sjötta umferð fer fram á miðvikudaginn, 12. október og hefst kl. 19:30.
A-flokkur:
Úrslit 5. umferðar:
1 | Kjartansson David | 1 – 0 | Bergsson Stefan |
2 | Olafsson Thorvardur | 1 – 0 | Baldursson Haraldur |
3 | Valtysson Thor | 0 – 1 | Kjartansson Gudmundur |
4 | Jonsson Bjorn | 0 – 1 | Bjornsson Sverrir Orn |
5 | Ragnarsson Johann | 1 – 0 | Bjornsson Tomas |
Staðan:
Rk. | Name | RtgI | RtgN | Club/City | Pts. | |
1 | Ragnarsson Johann | 2068 | 2057 | TG | 4 | |
2 | IM | Kjartansson Gudmundur | 2314 | 2316 | TR | 4 |
3 | FM | Kjartansson David | 2291 | 2266 | Víkingaklúbburinn | 3,5 |
4 | Bjornsson Sverrir Orn | 2158 | 2141 | Haukar | 3 | |
5 | FM | Bjornsson Tomas | 2162 | 2147 | Goðinn | 2,5 |
6 | Olafsson Thorvardur | 2174 | 2181 | Haukar | 2,5 | |
7 | Bergsson Stefan | 2135 | 2135 | SA | 2 | |
8 | Jonsson Bjorn | 2045 | 1962 | TR | 1,5 | |
9 | Valtysson Thor | 2041 | 2025 | SA | 1,5 | |
10 | Baldursson Haraldur | 2010 | 1950 | Víkingaklúbburinn | 0,5 |
Aðrir flokkar:
Dagur Ragnarsson (1761) er efstur í b-flokki með 4½ vinning. Stephen Jablon (1965) er annar með 3½ vinning. Kristján Örn Elíasson (1906) og Mikael Jóhann Karlsson eru í 3.-4. sæti með 3 vinninga.
Oliver Aron Jóhannesson (1645) er efstur í c-flokki með 4½ vinning. Birkir Karl Sigurðsson (1597) er annar með 4 vinninga. Friðgeir Hólm (1667), Þorsteinn Leifsson (1772) og Jón Trausti Harðarson (1660) eru í 3.-5. sæti með 3 vinninga.
Vignir Vatnar Stefánsson (1444) er efstur í d-flokki (opnum flokki) með fullt hús. Jóhann Arnar Finnsson (1199) og Nansý Davíðsdóttir (1309) eru í 2.-3. sæti með 4 vinninga.