Jólaskákmót TR og SFS fer fram 29. og 30. nóvember



Yngri flokkur (1. – 7. bekkur)

Keppnisstaður: Taflfélag Reykjavíkur, Faxafeni 12

Keppt verður í stúlkna og drengja flokkum (opnum flokkum). Heimilt er að senda

A, B, C o.s.frv. stúlknasveitir og A, B, C o.s.frv. drengjasveitir. Í hverri sveit eru

4 keppendur og 0-2 til vara.

Í yngri flokki verður keppt í tveimur riðlum sunnudaginn 29. nóvember.

Suður riðill hefur keppni kl. 10.30 (sjá skóla hér að neðan)

Norður riðill hefur keppni kl. 14.00 (sjá skóla hér að neðan)

Tefldar verða 6 umferðir (hraðmót) eftir Monrad kerfi.

Umhugsunartími: 10 mín. á skák. Þátttökurétt hafa börn úr grunnskólum

Reykjavíkur í 1.-7. bekk. Mikilvægt er að liðsstjóri fylgi liðum hvers skóla.

Verðlaunaafhending verður að lokinni keppni.

Tvær efstu sveitir í hvorum riðli munu keppa til úrslita við sveitirnar úr hinum

riðlinum um þrjú efstu sætin mánudaginn 30. nóvember kl. 17:00.

 

Eldri flokkur (8. – 10. bekkur).

Keppnisstaður: Taflfélag Reykjavíkur, Faxafeni 12.

Keppt verður í stúlkna og drengja flokkum (opnum flokkum). Heimilt er að senda

A, B, C o.sfrv. stúlknasveitir og A, B, C o.s.frv. drengjasveitir. Í hverri sveit eru

4 keppendur og 0-2 til vara.

Keppni í eldri flokki verður mánudaginn 30. nóvember kl. 17:00.

Umhugsunartími: 15. mín. á skák. Þátttökurétt hafa unglingar úr grunnskólum

Reykjavíkur í 8.-10. bekk. Verðlaunaafhending verður að lokinni keppni.

Tefldar verða 6 umferðir (hraðmót) eftir Monrad kerfi.

Þátttaka í báða flokka tilkynnist til skrifstofu Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur eigi

síðar en föstudaginn 27. nóvember. Ekki verður hægt að skrá lið á mótsstað.

Skráning sendist á netfang: soffia.palsdottir@reykjavik.is

Skipting í riðla yngri flokks

Yngri flokkur – Suður riðill (kl. 10.30):

Ártúnsskóli ● Breiðagerðisskóli ● Breiðholtsskóli ● Brúarskóli

Fellaskóli ● Fossvogsskóli ● Grandaskóli ● Háaleitisskóli ● Hagaskóli ● Háteigsskóli

Hlíðaskóli ● Hólabrekkuskóli ● Hraunkot ● Hvassaleitisskóli ● Klettaskóli ● Melaskóli

Norðlingaskóli ● Réttarholtsskóli ● Selásskóli ● Seljaskóli ● Suðurhlíðarskóli ● Ölduselsskóli

Yngri flokkur – Norður riðill (kl. 14:00):

Árbæjarskóli ● Austurbæjarskóli ● Dalsskóli ● Foldaskóli ● Hamraskóli ● Húsaskóli

Ingunnarskóli ● Ísaksskóli ● Kelduskóli ● Klébergsskóli ● Landakotsskóli ● Langholtsskóli

Laugalækjaskóli ● Laugarnesskóli ● Rimaskóli ● Sæmundarskóli ● Vættaskóli

Vesturbæjarskóli ● Vogaskóli