Sjötta umferð Skeljungsmótsins – Skákþings Reykjavíkur fór fram í kvöld. Forystusauðurinn, Hrannar Baldursson (2080), gerði jafntefli við Þorvarð Ólafsson (2182) á meðan Hjörvar Steinn Grétarsson (2279) sigraði Torfa Leósson (2155). Hjörvar hefur því náð Hrannari að vinningum og eru þeir nú efstir og jafnir með 5,5 vinning. Jöfn í þriðja og fjórða sæti með 5 vinninga eru Þorvarður og Lenka Ptacnikova (2249).
Fjórum skákum var frestað og fara fram á morgun, laugardag kl. 13. Pörun sjöundu umferðar liggur fyrir að þeim loknum.
Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu mótsins.