Annað mót Hraðskákmótaraðar Taflfélags Reykjavíkur fer fram föstudagskvöldið 23.febrúar í skáksal TR að Faxafeni 12. Taflið hefst stundvíslega klukkan 19:30. Mótið er opið öllum skákmönnum með yfir 2000 skákstig, eða þeim sem hafa einhverntíman á ferlinum rofið 2000 stiga múrinn. Mótsnefnd áskilur sér rétt til þess að bjóða völdum gestum undir 2000 stigum að tefla með.
Tefldar verða 11 umferðir með tímamörkunum 3+2 og verður mótið reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga. Frítt inn!
Dagskrá mótaraðarinnar:
- Mót 1: 26.janúar
- Mót 2: 23.febrúar
- Mót 3: 23.mars
- Mót 4: 27.apríl
Mælst er til þess að skákmenn skrái sig í gegnum skráningarformið til þess að auðvelda skipulagningu mótsins. Einnig verður hægt að skrá sig til leiks á skákstað á mótsdegi en skráningu lýkur kl.19:20.