Sunnudaginn 20. september hefst Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2009. Mótið er eitt af aðalmótum vetrarins í reykvísku skáklífi og er jafnframt meistaramót T.R. Það er áratuga gömul hefð fyrir hinu vinsæla Haustmóti T.R. og er það flokkaskipt. Mótið er öllum opið.
Teflt verður í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur, skákhöllinni að Faxafeni 12, á miðvikudögum, föstudögum og sunnudögum og eru góð verðlaun í boði í öllum flokkum. Alls verða tefldar 9 skákir í hverjum flokki. Í efstu flokkunum verður teflt í lokuðum 10 manna flokkum, en í neðsta flokki verður teflt eftir svissnesku kerfi.
Skráning fer fram á [email protected] eða í síma 895-5860 (Ólafur Ásgrímsson).
Skráningu í A-flokk lýkur laugardaginn 19. september kl. 18.
Skákstjóri er hinn gamalreyndi og síungi Ólafur S. Ásgrímsson og hin eina og sanna Birna sér um veitingar.
Valið verður í A-flokk eftir alþjóðlegum FIDE stigum.
Núverandi meistari T.R. er Hrafn Loftsson.
Dagskrá Haustmótsins er þessi:
1. umferð: Sunnudag 20. september kl.14.00
2. umferð: Miðvikudag 23. september kl.19.30
——Hlé vegna Íslandsmóts skákfélaga——-
3. umferð: Miðvikudag 30. september kl.19.30
4. umferð: Föstudag 2. október kl.19.30
5. umferð: Sunnudag 4. október kl.14.00
6. umferð: Miðvikudag 7. október kl.19.30
7. umferð: Föstudag 9. október kl.19.30
8. umferð: Sunnudag 11. október kl.14.00
9. umferð: Miðvikudag 14. október. kl.19.30
Verðlaun í A-flokki:
1. verðlaun kr. 50.000
2. verðlaun kr. 30.000
3. verðlaun kr. 20.000
4. og 5. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2010
Verðlaun í B-flokki:
1. verðlaun kr. 20.000
2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2010
Verðlaun í C-flokki:
1. verðlaun kr. 15.000
2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2010
Verðlaun í D-flokki:
1. verðlaun kr. 10.000
2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2010
Bætist við fleiri flokkar verða verðlaun í þeim þau sömu og í D-flokki.
Að auki ávinnur sigurvegari hvers flokks sér þátttökurétt í næsta styrkleikaflokki að ári liðnu.
Fyrirkomulag: Flokkar A-D eru lokaðir 10 manna flokkar þar sem allir tefla við alla. E-flokkur er opinn þar sem tefldar eru 9 umferðir eftir Svissnesku kerfi. Ef þátttaka fer yfir 70 verður E-flokkur lokaður og opnum F-flokki bætt við.
Tímamörk: 1 klst. og 30 mín. + 30 sek. á leik.
Þátttökugjöld:
3.000 kr. fyrir félagsmenn T.R. 16 ára og eldri (3.500 kr. fyrir aðra).
1.500 kr. fyrir félagsmenn TR 15 ára og yngri (2.000 kr. fyrir aðra).
Taflfélag Reykjavíkur Elsta og virkasta skákfélag landsins