Taflfélag Reykjavíkur heiðraði á dögunum Hannes Hlífar Stefánsson stórmeistara fyrir það einstæða afrek í skáksögu Íslendinga að hafa tíu sinnum sigrað á Skákþingi Íslands. Heiðurshóf var haldið í húsakynnum Taflfélagsins í Faxafeni að viðstöddum félögum Hannesar úr Íslandsmeistarliði Taflfélags Reykjavíkur, stjórn félagsins, fjölskyldu Hannesar og vinum. Óttar Felix Hauksson, formaður Taflfélags Reykjavíkur, flutti stutt ávarp og afhenti Hannesi Hlífari heiðursviðurkenningu fyrir hönd félagsins . Að því loknu voru bornar fram léttar veitingar. Morguninn eftir hélt Hannes Hlífar, ásamt landsliði Íslands í skák, til Kína til þátttöku í heimsmóti hugleikja sem Kínverjar hafa gefið nafnið Mind Games. Hannes Hlífar Stefánsson mun tefla á fyrsta borði fyrir Íslands hönd á Ólympíulmótinu sem hefst í Dresden í Þýskalandi 14. nóvember nk.
Myndtexti: Hannes Hlífar Steánsson (t.v.) tekur við heiðursviðurkenningu TR úr hendi Óttars Felix Haukssonar formanns.
Myndir frá athöfninni má finna hérna