Skákmót öðlinga hefst miðvikudaginn 22. febrúar



Skakmot_odlinga_2017

Skákmót öðlinga 40 ára og eldri hefst miðvikudaginn 22. febrúar kl. 19.30 í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur á alla skákina  auk 30 sekúndna viðbótartími á hvern leik.
Mótið verður nú haldið í 26. sinn en núverandi Skákmeistari öðlinga er Stefán Arnalds.

Dagskrá:
1. umferð miðvikudag 22. febrúar kl. 19.30
2. umferð miðvikudag 1. mars kl. 19.30
3. umferð miðvikudag 8. mars kl. 19.30
4. umferð miðvikudag 15. mars kl. 19.30
5. umferð miðvikudag 22. mars kl. 19.30
6. umferð miðvikudag 29. mars kl. 19.30
7. umferð miðvikudag 5. apríl kl. 19.30

Tvær yfirsetur (bye) eru leyfðar í umferðum 1-5 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Láta skal skákstjóra vita um yfirsetu fyrir lok umferðarinnar á undan.

Mótinu lýkur miðvikudaginn 12. apríl kl. 19:30 með hraðskákmóti og verðlaunaafhendingu. Keppt er um veglegan farandbikar, en auk hans eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, bæði í aðalmótinu og hraðskákmótinu.

Tímamörk
90 mín + 30 sek viðbót eftir hvern leik

Verðlaun
1. sæti kr. 40.000
2. sæti kr. 20.000
3. sæti kr. 10.000

Þátttökugjald (greiðist með reiðufé við upphaf móts)

kr. 5.000 – Innifalið er frítt kaffi allt mótið ásamt rjómavöfflum og öðru góðgæti á lokakvöldi

Skákstjórn

Þórir Benediktsson; thorirbe76@gmail.com, s. 867 3109

Skráningarform

Skráðir keppendur