Hadi efstur á Þriðjudagsmóti 30. maí



Hadi Resaei Heris varð hlutskarpastur á þriðjudagsmóti T.R. sem fram fór 30. maí. Hann hlaut 4½ vinn. í fimm skákum, leyfði eitt jafntefli við útvarpsmanninn góðkunna og frambjóðanda til forseta S.Í., Kristján Örn Elíasson, sem varð annar með 4 vinn. Þriðji varð síðan Kristófer Orri Guðmundsson, einnig með 4 vinn. en lægri á oddastigum. Bestum árangri miðað við eigin stig náði Eiríkur Orri Guðmundsson.

350698916_924052765342275_2737143282959659418_n

Hadi að tefla við Roberto í síðustu umferð mótsins í gær, hann hafði sigur.

Skákstjóri var Ríkharður Sveinsson.

Lokastaðan á chess-results: