Guðmundur Kjartansson efstur á Kornax mótinu



Guðmundur Kjartansson er einn efstur á Kornax mótinu – Skákþingi Reykjavíkur eftir skákir 6. umferðar.  Guðmundur sigraði Sverri Ö Björnsson örugglega á meðan að Bragi Þorfinnsson  sem var jafn þeim að vinningum  gerði jafntefli við Hjörvar S. Grétarsson . 7. umferð fer fram á morgun og mætast þá meðal annars Guðmundur og Bragi, Björn Þorfinnsson og Ingvar Þór Jóhannesson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Einar Hjalti Jensson.

chess-results (pörun – úrslit – staða)